top of page
IMG_2175.JPG

UMSAGNIR

FRÁ BALÍ FERÐ MY JOURNEY Í MAÍ 2023 & SEPTEMBER 2023

& KOLBRÚNAR Í OKTÓBER 2022

Að fara með ykkur yndis konum í þessa ferð er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið fyrir mig. Á þessari dásamlegu eyju sem Balí er fékk ég næringu fyrir sál og líkama og eiginlega meira fyrir sálina. Innri ró og örlítið aðra sýn á lífið og hvernig ég vil lifa því. Ég kem aftur með síðar. Hjartans þakkir fyrir mig 

- Sigga Ottós

Frábær ferð í alla staði. Gaman að fá að kynnast mismunandi tegundum jóga og fékk á námskeiðinu tól sem ég á eftir að nýta mér í lífinu. Að fá að kynnast töfrum Bali með þeim Þórunni og Kolbrúnu var ævintýri líkast og þær tvær alveg frábærar með þægilega nærveru og umhyggjusamar. Takk fyrir mig 

- Helga Sveinsdóttir

Balíupplifun með þeim Kollu og Þórunn er einstök og ég get ekki mælt nógu mikið með þeim. Allt skipulag er frábært og þær leiða mann í ótrúleg ævintýri sem eru sérstök fyrir Balí. Kolla er frábær jógakennari og þær stöllur eru yndislegt teymi.

-Berglind Jóns

Ég mæli eindregið með ferð til Balí með Kollu og Þórunni. Ferðin var mjög vel plönuð, hótelin og staðirnir voru ævintýralegir svo ekki sé meira sagt og sjarmi þessara litlu eyju sprengir alla fegurðarskala. Þetta var ógleymanleg ferð og ég mun aldrei gleyma öllu því sem ég upplifði. Ég kom heim stútfull af hamingju og er strax byrjuð að plana mína næstu ferð. Í einu orði sagt var þetta meiriháttar.

- Binna Veigarsdóttir

Allir eiga skilið að láta drauma sína verða að veruleika. Draum um andlega vegferð, fallega og heilandi sjálfsrækt í undurfallegri náttúru sem er engrAllir eiga skilið að láta drauma sína verða að veruleika. Draum um andlega vegferð, fallega og heilandi sjálfsrækt í undurfallegri náttúru sem er engri annarri lík ( sem ég hef allavega ekki upplifað ennþá) samferða sálum sem allar vilja upplifa það sama ró, kærleika, fegurð, innblástur, frið, hugrekki, lækningu, orkujöfnun og svo margt mætti telja meira upp. Að eiga þennan tíma á Balí með Þórunni og Kolbrúnu var yndislegt í alla staði innan um kærleiksríka Balíbúa sem vilja allt fyrir mann gera eins og þær sjálfar. Þetta ferðalag skilur eftir margar undursamlegar minningar í mínum minningabanka og ég hvet alla sem geta að setja svona ferð hjá sér efst á Bucket listann. Að rækta sig er besta ræktin sem við getum gefið okkur andlega og líkamlega og ekki skemmir staðsetningin fyrir, við eigum það öll skilið að komast nær kjarnanum okkar og lifa ávallt í gleði og kærleika  Takk fyrir mig, My Journey

- Guðrún Birna 

Þessi ferð var fullkomin í alla staði fyrir mig og nákvæmlega það sem ég þurfti á þessum tímapunkti. Umhverfið og umgjörðin dásamleg. Þórunn og Kolbrún æðislegar og gera þetta listilega vel, þekkja svæðin vel, eru jákvæðar, hvetjandi og eru tilbúnar að aðstoða við hvað sem er. Yogað var fullkomið ekki of auðvelt né of erfitt og því getur hver sem er tekið þátt. Hugleiðslan, öndun og umræður skemmtilegar og fullt af góðum verkfærum sem ég fékk sem ég tek með mér eftir þessa ferð. Mæli 100% með og eitthvað sem ég á pott þétt eftir að gera aftur, mögulega ein svona ferð á ári væri draumur 

- Hildur

Jóga undir leiðsögn Kolbrúnar er endurnærandi ferðalag fyrir bæði líkama og sál. Kolbrún hefur einstaklega góða og nærandi nærveru. Hún leggur áherslu á að útskýra æfingarnar og hvað þær gera fyrir mann, leyfir manni að gera æfingarnar á sínum forsendum í sínu flæði. 

Einnig er vert að nefna að hugleiðsla með Kolbrúnu er töfrum líkast, róandi röddin leiðir mann á einhvern himneskan stað.........

- Unnur Hauksdóttir

Yoga á Balí með Kolbrúnu var best í heimi! Glaðlynd með góða nærveru og umhyggju fyrir að næra líkama og sál með gagnlegum æfingum og fræðslu. 

- Þórey Gunnlaugsdóttir 

 

Kolbrún er með yndislega nærveru og mætir manni alltaf með kærleik og hlýju. Ég hef farið til hennar í yoga, reiki heilun og access bars og get mælt með þessu öllu. Allt sem hún tekur sér fyrir hendur er vel gert og vel undirbúið. Þegar unnið er með andlega heilsu er svo mikilvægt að mæta fagaðila sem vinnur heildrænt og Kolbrún er þannig fagaðili. Hún er vel að sér bæði í fræðum um líkama og sál og tengingunni þar á milli. Metnaður og fagmennska er í fyrirrúmi hjá henni og ég fer alltaf endurnærð frá henni <

- Hrönn Stefánsdóttir

 

Ég kynntist Kolbrúnu á Balí og er hún með góða og þægilega nærveru og voru tímarnir hennar í yoga, hugleiðslu og spjalli allir góðir. Elskaði sólarupprásar yogað sérstaklega þegar Vaknað var með fuglunum og dýralífinu á Balí. Ég lærði ýmislegt frá henni sem ég get nýtt mér til að bæta orku og ná mér í núið.

Mæli með henni og hlakka til að mæta í tíma hjá henni heima á Íslandi líka.

- Katrín Sif Jónsdóttir

 

Takk Kolbrún fyrir það að taka þátt í minni vegferð og styðja mig í henni. Takk fyrir að hlusta á mig og taka eftir mér og takk fyrir jóga tímana og alla fræðsluna sem þú hefur verið með. Betri leiðbeinanda er erfitt að finna að mínu mati og að auki er nærvera þín svo góð. Að fara í ferðalagið mitt til Balí með þig mér við hlið var eitthvað sem ég hefði ekki vilja missa af því þú átt svo stóran þátt í dásamlegu upplifuninni minni. Ég mun klárlega halda áfram að sækja í það sem þú hefur upp á að bjóða og er ég endlaust þakklát fyrir það að hafa fundið þig 

- Lucy Anna

 

Kolbrún er frábær jógakennari og það er yndislegt að fylgja henni í tímum. 

- Berglind Björk Jónsdóttir

 

Jóga með Kolbrúnu er besta jóga sem ég hef farið í á ævi minni. Hún er svo flott og leggur mikinn metnað í að láta manni líða sem best í tímanum. Svo er hún svo ljúf og góð með yndislega nærveru.

- Bára Gunnlaugsdóttir

Kolbrún er frábær jógakennari og tímarnir hjá henni mjög fjölbreyttir

- Margrét Valgeirsdóttir

Ég upplifði einn af stóru draumunum mínum þegar ég fór til Balí í skipulagða sjálfsræktar ferð. Kolbrún Ýr var ein af leiðbeinendunum í ferðinni, ég er svo innilega þakklát fyrir að hafa fengið að fara í gegnum þetta ferðalag með henni því betri leiðbeinanda er erfitt að finna. 

Kolbrún hefur einstaklega hlýja nærveru og nálgast allt af svo mikilli virðingu og kærleika, allt sem hún hefur fram að færa, jóga, hugleiðsla eða fræðsluerindi smitar hún sem sínu fallega ljósi.

Takk fyrir mig elsku Kolbrún Ýr 

- Sonja Hafsteinsdóttir

 

Kolbrún er ein af mínum fyrirmyndum í lífinu enda fagmaður fram í fingurgóma, með einstaka nærveru og svooo ljúf, góð og brosmild. Það sem hún tekur sér fyrir hendur gerir hún vel,  ég hef lært margt af henni enda frábær leiðbeinandi þegar kemur að andlegu hliðinni og yoga því hún útskýrir allt svo vel og þú finnur bara að hún vill innilega að þér bæði líði vel og gangi vel og það veitir alla vega mér öryggi.  Það skiptir miklu máli að líða vel hvar sem maður er staddur í heiminum eða lífinu almennt og það er ekki annað hægt en að líða vel  á Balí en að vakna þar og fara beint út í yoga hjá Kolbrúnu er eitthvað annað, algjörlega geggjað. Gott fólk dregur fram það góða í öðru fólki og það gerir Kolbrún svo sannarlega. 

- Íris Fönn Gunnlaugsdóttir

Ohhh að stunda jóga, hugleiðslu, fá kennslu og leiðbeiningar hvernig hægt er að vinna með orkuflæði líkamans á paradísareyjunni Balí hjá yndislegu Kolbrúnu er eitthvað sem ég mun seint gleyma , hún með sína yndislegu nærveru og allan kærleikann að miðla með sinni alkunnu fagmennsku gaf mér þann besta og yndislega tíma sem ég mun ávallt muna. Takk elsku Kolbrún fyrir þig, takk fyrir að sá fræjum hjá mér og takk fyrir magnaðan tíma á Balí 

- Guðrún Birna Gylfadóttir

bottom of page